Veður ehf
Vindstrengir - Sumir hættulegir
![]()
Þessi "vindpakki" sem þarna er lentur í krísunni, samþjappaður af stöðugum vindi sem á fjallinu lendir þrýstir sér því áðurnefndar þrjár leiðir, þ.e. 1-3. Þar leggst þetta samþjappaða loft / vindur við þann vind sem fyrir er. M.ö.o. samlegðaráhrif. Þarna geta því myndast miklir strengir, og því meiri sem almennur vindhraði er á svæðinu þeim mun sterkari verða strengirnir. Þetta þýðir það að almenn veðurspá sem hljómar ekkert ógurlega illa getur þegar á hólminn er komið og við vissar aðstæður reynst hættublandinn. Þetta þýðir að staðbundnir þættir stýra talsvert veðri og þar með er staðbundinn þekking á svæði sem ferðast er um, mjög mikilvæg. Þarna kann svo að vera að 5 ára nám veðurfræðings dugi skemur en staðbundinn þekking gamanleikara.