2. Spurt er um fjörð. Þar segir af kerlingu nokkurri er Kráka hét. Hún átti tvo sonu. Segir sagan að í fiskiróðri einum hafi tveir synir hennar farist í umræddum firði. Mælti hún þá svo um í harmi sínum, að þar skyldi aldrei veiðast oftar bein úr sjó. Fjörðurinn sem hér er átt við er: Mórudalur á Barðaströnd. Náttfaravík við Skjálfanda. Veiðileysufjörður á Ströndum.
3. Spurt er um verstöð. Hún var um aldir ein fengsælasta og fjölsóttasta verstöð Íslands. Talið er að útgerð hafi hafist þar um miðja 16. öld. Þar voru mest 10 þurrabúðir og réru þaðan 60-70 bátar með 300-400 vermönnum. Fáar menjar hafa varðveist á þessum stað. Líklegast er þetta: Selatangar á Reykjanesi Dritvík á Snæfellsnesi Ingólfsfjörður á Ströndum.
4. Spurt er um lítið kauptún. Þar er talið að papar hafi búið fyrstir manna og máttu ekki heiðnir menn þar búa. Síðar settist Ketill hinn fíflski að á umræddum stað. Sérkennilegur blettur er á þessum stað sem nefndur er "kirkjugólf". Staðurinn er: Breiðabólstaður í V-Húnavatnssýslu. Hlíðarendi í Fljótshlíð, Rangárvallsýslu. Kirkjubæjarklaustur í V-Skaftafellssýslu.
5. Spurt er um höfða með þverhníptu standbergi í sjó. Mjór, en frægur klettatangi gengur út úr höfðanum sem nefndur hefur verið Tóin. Nafn tiltekins þingmanns kemur oft upp í hugann þegar nafn höfðans er nefnt. Höfðinn kallast: Dyrhólaey í V-Skaftafellssýslu. Bjarnarey í Vestmannaeyjum. Drangey í Skagafirði.
6. Sólheimajökull gengur úr: Eyjafjallajökli. Mýrdalsjökli. Skeiðaárjökli.
7. Heiðin milli Egilsstaða og Vopnafjarðar heitir: Fjarðarheiði. Mjóafjarðarheiði. Hellisheiði.
8. Algengasta bergtegundin á Íslandi heitir: Líparít. Granít. Basalt.
9. Dýpsta stöðuvatn á Íslandi (220m) heitir: Öskjuvatn í Dyngjufjöllum Víti í Kröflu Grænavatn í Krýsuvík
10. Lokinhamrar er eyðibýli sem stendur við: Dýrafjörð. Arnarfjörð. Önundarfjörð.
Hlutfall réttra svara = Rétt svör: