Spurningaleikur í almennri ferðlandafræði.

1. Í hvaða sýslu er Flatey á Breiðafirði?
Snæfells- og Hnappadalasýslu.
Barðastrandarsýslu.
Dalasýslu.

2. Hvaða fjörður gengur lengst inn í landið?
Hrútafjörður.
Reyðarfjörður.
Hvalfjörður.

3. Hvert er algengasta fjallsnafn á Íslandi?
Herðubreið.
Helgafell.
Búrfell.

4. Hvað heitir fjallvegurinn milli Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðar?
Hellisheiði eystri.
Fjarðarheiði.
Kerlingaskarð.

5. Hvar er fossinn Glymur?
Í Botnsá í Hvalfirði.
Í Jökulsá á Fjöllum.
Í Skjálfandafljóti.

6. Hvaða landamerki frá náttúrunnar hendi skilja að Árnes- og Rangárvallasýslur?
Sogið.
Hvítá.
Þjórsá.

7. Sprengigígurinn í Kröflu heitir?
Víti.
Kerið.
Grænavatn.

8. Í hvaða sýslu er sveitin Sæmundarhlíð?
Suður Þingeyjarsýslu.
Skagafjarðarsýslu.
Austur Skaftafellssýslu.

9. Hvert er algengasta nafn á ám á Íslandi?
Þverá.
Langá.
Laxá.

10. Lengsta á á Íslandi er nálægt því að vera 210 km. Hvaða á er það?
Þjórsá.
Jökulsá á Fjöllum.
Skeiðará á Skeiðarársandi.

Hlutfall réttra svara = 
Rétt svör: