Hvað og hvar er Torrevieja?
Torrevieja er gamalt
fiskimannaþorp við Miðjarðarhafið, staðsett nánast á miðri "Costa Blanca"
strandlengjunni (hvítu ströndinni) á suðausturströnd Spánar,
um 45 km fjarlægð
suður af alþjóðaflugvellinum í Alicante. Gríðarleg uppbygging hefur verið á
þessu svæði síðustu ár og í dag er Torrevieja borg sem telur um 100.000
fasta
íbúa og annað eins af ferðamönnum sem dvelja þar í lengri eða skemmri tíma,
ýmist í sínum eigin húsum eða leigja. Borgin er afar vinsæl meðal Þjóðverja og
Breta.
Ennfremur er talsverður fjöldi af Svíum og Norðmönnum. Talið er að um 400
Íslendingar búi í þessari borg árið um kring en á sumrin margfaldast sú tala.
Má
ætla að fjöldinn sé þá um 5000 manns. Borgin er í raun afar athyglisverð vegna
þess mikla fjölda Íslendinga sem þar hafa sest að til lengri eða skemmri dvalar.
Ekki veit ég hvort kalla megi þetta vísi að Íslendinganýlendu??
Torrevieja er ósköp
venjuleg spánsk borg með allri þeirri þjónustu sem hugsast getur og prýðir
helstu borgir.
Veitingastaðir
eru á hverju strái og af öllum stærðum og gerðum.
Þá er stór vatnleikjagarður
(Aquapolis), go-kart braut, tívolí,
dýragarður, sirkus, uppákomur hverskonar, sérverslanir,
tískuvöruverslanir, magasín, fjöldi götumarkaða og margt fleira.
Baðstrandirnar (sólarstrandirnar) eru mjög margar, sumar
með þjónustu s.s. útleigu á bekkjum, hjólabátum, sæsleðum o.fl.
á meðan aðrar strandir
eru litlar og fámennar með engri sérstakri þjónustu.

Margir
spyrja okkur að því
hvort auðvelt sé að komast á milli staða á Torrevieja. Því er til að svara, að á Torrevieja
eru að sjálfsögðu leigubílar
og strætóar en hiklaust mæli ég með því að fólk
hafi bíl til umráða. Ekki vegna þess að fjarlægðirnar séu miklar, heldur til að
njóta alls
þess sem svæðið hefur uppá að bjóða. T.d. eru stórir götumarkaðir,
bæði inn í hverfum en líka uppi í sveit. Þá munar miklu í verði að versla í
betri
stórmörkuðum en hjá kaupmanninum á horninu. Ennfremur þegar farið er á ströndina
taka reynsluboltar ávallt með sér nesti og drykki
og það munar um að þurfa ekki að bera slíkt.
Auðvelt er að keyra á Torrvevieja - mun auðveldara en í Reykjavík -
eða það
segja margir eftir sinn fyrsta bíltúr á Torrvieja.
Til fróðleiks má geta þess
að mikið er af saltvötnum á Torrevieja og er saltvinnsla þar mikil. Meðal annars
er talsvert flutt til Íslands af salti frá Torrevieja. Það er talin
mikil
heilsbót að baða sig í saltvötnunum, ekki síst fyrir öndunarfærin, sérstaklega
lungun. Saltgufur frá vötnunum eru
taldar hafa þar góð áhrif og eru m.a. til
margar fræðigreinar um lækningamátt
þessara saltvatna. Loftið á Torrevieja er talið eitt það heilsusamlegasta sem
völ er á, m.a. vegna lækningamátts saltsins.


Kortið hér að neðan sýnir einstök
íbúðahverfi á Torrevieja svæðinu.
