Húsið okkar er um 100 fermetra parhús á tveimur hæðum byggt
2001. Það er í afar rólegu sérbýlishúsahverfi sem kallast Las Villas, sem
byggist upp kringum árið 2000.
Húsið keyptum við af Írum og var það afar
vel um gengið. Það snýr rétt m.t.t. sólarinnar sem auðvitað er stórt atriði fyrir
flesta sólþyrsta Íslendinga.
Framhliðin sem sést á myndinni (og þar með
veröndin) snýr í suðsuðvestur. Það þyðir í raun að á sumartíma kemur sólin inn á
veröndina uppúr kl. 12 á hádegi og er alveg til kvölds.
Á vetrartíma kemur
hún inn á veröndina uppúr kl. 11 á morgnana. Til að njóta morgunsólar eru
notaðar rúmgóðar svalir á efri hæð sem snúa mót norðaustri.
Í húsinu eru
samtals þrjú rúmgóð svefnherbergi. Á efri hæðinni eru tvö, bæði með loftkælingu (aircondition).
Á efri hæðinni
er ennfremur aðalbaðherbergi hússins með baði og sturtu.
Myndirnar hér að
ofan sýna svefnherbergin tvö á efri hæð. Í hvoru um sig er hjónarúm, sjónvarp og videó
og
fataskápur.
Þá er gengið út á svalir úr herbergjunum.
Myndirnar hér að neðan (t.v.) sýnir svefnherbergið á fyrstu hæð. Þar er stór tvíbreiður sófi
ásamt skrifborði.

Til hægri að ofan er
handlaug á baði á efri hæð. Neðri mynd til vinstri er úr sama baðherbergi, en
til hægri gefur að líta mynd af hluta eldhússins.

Að
neðan: Úr stofunni niðri.

Á neðri hæðinni er rúmgóð stofa með loftkælingu (aircondition), sófasetti,
borðstofuborði, sjónvarpi með aðgangi að 200 sjónrvarpsrásum auk DVD spilara. Þá
er ADSL nettenging í húsinu. Inn af stofu er gengið inn í
svefnherbergi með sófa
og skrifborði en hægt er að breyta sófanum í tvíbreitt rúm. Eldhúsið er líka á
þessari hæð.
Þar eru öll helstu tæki, s.s. stór ísskápur með frystihólfi, uppþvottavél,
bakarofn o.fl. Úr eldhúsinu er gönguhurð þar sem hægt er að ganga bak við húsið.
Þar er ennfremur skýli þar sem þvottavélin er geymd ásamt geymsluskápum. Öll
tæki eru nýleg. Gestasalerni (aukasalerni) er ennfremur á neðri hæðinni.
Í garðinum
er svo rúmgóð verönd með garðborði og sætum fyrir 8 manns. Þar er markísa til að
hindra sólina, t.d. þegar verið er að borða.
Tveir sólbekkir eru
auk þess í garðinum sem og stórt gasgrill. Á efri hæð eru tvennar rúmgóðar
svalir.
Myndarleg sundlaug
fylgir húsinu, en nokkur hús sameinast um hana. Sundlaugin er ská á móti húsinu.
Þar er lítil barnalaug auk venjulegrar sundlaugar. Ennfremur stólar og borð.
Lykil þarf af sundlauginni þar sem þetta er
einkalaug og er hún ávallt höfð læst
þar sem ekki nema hluti íbúanna í hverfinu hefur aðgang að henni.

Húsið okkar er
almennt ekki til útleigu. Þó hefur það komið fyrir en þá aðeins fyrir mjög skemmtilegt fólk
og þá til skemmri dvalar.
Allar óskir um slíkt skal senda á netfangið:
sigurdur@vedurehf.is
P.S. Húsið er reyklaust.